Evrópskt efnahagssvæði

16. fundur
Fimmtudaginn 10. september 1992, kl. 02:06:30 (486)


     Jóhann Ársælsson (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Ég er engu nær, nákvæmlega engu nær. ( Gripið fram í: Þú ert ekki einn um það.) Ég skil ekki enn þá hver stefnumörkunin er sem er á bak við þetta. Ég skil bara það sem stendur í plöggunum og þar stendur það skýrt og greinilega að vörur frá öðrum löndum, sem eru utan svæðisins, eigi að bera miklu hærri innflutningsgjöld en vörur sem koma frá EES-svæðinu. Það skil ég. Ég hefði gjarnan viljað heyra í hverju eða hvernig forráðamenn þessarar ríkisstjórnar skilja þetta.