Kristinn H. Gunnarsson
(um þingsköp)
:
Virðulegi forseti. Það hefur komið fram í máli hæstv. utanrrh. ákveðin breyting á meðferð mála hér í þinginu sem vissulega lýtur að þingsköpum. Breytingin er fólgin í því að ráðherrann telur óþarft af sinni hálfu að svara spurningum um efnisatriði máls sem hann mælir fyrir. Þess í stað vísar hann á þingnefndir og segir: Þið eigið að leita svara hjá þingnefndum.
Ein af þeim spurningum sem ég lagði fyrir ráðherrann var um það hversu víðtækur atvinnurétturinn væri gagnvart opinberum störfum. Ráðherrann hélt því fram fyrr í nótt að þessari spurningu hefði verið svarað. Ég veit mæta vel að spurningunni hefur ekki verið svarað hér innan þings en vegna þess að mér er bent á að hæstv. ráðherra leitar til þingnefndar um svör, vil ég upplýsa ráðherrann og forseta um það að ég spurði þessarar spurningar í þingnefnd síðasta sumar. Ég gekk eftir svörum í sömu þingnefnd fyrir fáeinum dögum. Til svara varð fulltrúi framkvæmdarvaldsins sem átti að tína saman svarið og hafa á reiðum höndum eftir sumarið. Svarið sem við fengum í þingnefndinni var að það væri ekki til neitt svar.
Ég vil því spyrja hæstv. forseta: Hvar eigum við þingmenn að leita eftir svörum við okkar spurningum fyrst framsögumaður máls hefur þau ekki á reiðum höndum, veitir þau ekki en vísar okkur til þingnefndar sem getur ekki aflað þeirra?