Utanríkisráðherra (Jón Baldvin Hannibalsson) :
Virðulegi forseti. Hv. þm. Hjörleifur Guttormsson og Kristinn H. Gunnarsson spyrjast fyrir um kynningu á EES-samningi gagnvart íslenskum sveitarfélögum og reyndar er hér á dagskrá, undir 4. dagskrárlið, fyrirspurn til félmrh. um áhrif EES-samnings á sveitarfélögin.
EES-samningurinn snertir flesta þætti íslensks atvinnulífs og verksvið allra ráðuneyta. Það hefur því orðið eðlilegt verkefni starfsfólks einstakra ráðuneyta, sem starfað hefur að tilteknum þáttum samningsins, að kynna afleiðingar hans fyrir þeim hagsmunaaðilum og félagasamtökum sem undir það ráðuneyti falla. Þannig hélt t.d. Berglind Ásgeirsdóttir, ráðuneytisstjóri í félmrn., ítarlegt erindi um EES-samningana á fjölsóttri fjármálaráðstefnu sveitarfélaga haustið 1991 og hefur það erindi síðan verið birt í Sveitarstjórnarmálum.
Utanrrn. hefur hins vegar einbeitt sér að almennri kynningu á samningnum, dreift kynningarefni í bæklingsformi í hvert hús, útbúið upplýsingablöð sem dreift hefur verið til allra sem áhuga hafa og auk þess liggur þetta upplýsingaefni frammi á hverju bókasafni. Væntanlega hefur þetta efni ekki síður orðið sveitarstjórnarmönnum að gagni en öðrum landsmönnum.
Loks ber þess að geta að Samtök ísl. sveitarfélaga hafa ráðið sér starfsmann til þess að gera úttekt á samningnum. Þar fylgja þau fordæmi fjölmargra hagsmunasamtaka á undanförnum árum sem hafa falið starfsfólki á sínum vegum athugun þessa samnings sem sérverkefni.