Evrópskt efnahagssvæði

18. fundur
Fimmtudaginn 10. september 1992, kl. 13:04:40 (575)

     Ragnar Arnalds (um atkvæðagreiðslu) :
    Virðulegi forseti. Um leið og þingflokkur Alþb. samþykkir að máli þessu verði vísað til nefndar telur hann rétt að minna á að færð hafa verið sterk rök að því að frv. samræmist ekki íslenskri stjórnarskrá. Við væntum þess að sú hlið málsins verði tekin til rækilegrar athugunar í nefnd áður en málið kemur aftur hér til meðferðar.