Húsgöngu- og fjarsala

18. fundur
Fimmtudaginn 10. september 1992, kl. 15:01:31 (602)

     Viðskiptaráðherra (Jón Sigurðsson) (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Þetta mál er að sönnu ekki til umræðu hér en ég vil taka fram að í 10. dagskrármálinu, samkeppnislagafrumvarpinu, sem er 9. mál þingsins á þskj. 9, er kafli um greiðslukort. Það ber þannig að að ég hef á mörgum þingum flutt tillögu til laga um greiðslukortaviðskiptin. Nú hefur náðst um það samkomulag, vona ég, við ýmsa sem hafa látið sig málið varða hér í þinginu og utan þess að fella almennar reglur um þessi viðskipti inn í samkeppnislögin og ég bið hv. 14. þm. Reykv. að kynna sér efni þeirrar tillögu. Ég vonast til þess að þetta frv. megi koma til umræðu hér á eftir.