Uppboðsmarkaður fyrir sjávarafla

19. fundur
Föstudaginn 11. september 1992, kl. 17:28:14 (675)

     Guðmundur Bjarnason (um þingsköp) :
    Virðulegi forseti. Ég þakka fyrir þessar undirtektir. Það er ekki krafa mín að fundi sé slitið. Hafi hann átt að standa til kl. sex geri ég enga kröfu um það. Ég ætla ekki að tefja tímann með þingskapaumræðu og get fallist á að hæstv. ráðherra mæli fyrir málinu, en að umræðu verði ekki lokið.