Tollalög

20. fundur
Mánudaginn 14. september 1992, kl. 15:04:56 (692)

     Jóhann Ársælsson (andsvar) :
    Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. fjmrh. svörin. Hann er greinilega að gefa í skyn að hann sé tilbúinn að endurskoða þetta. Ég skora á hv. nefndarmenn að taka til alvarlegrar skoðunar hvort við eigum að gera þann mun á innflutningi frá löndum utan EES-svæðisins og innan, eins og hér er gert ráð fyrir, vegna framtíðar Íslendinga í viðskiptum við aðrar þjóðir.