Anna Ólafsdóttir Björnsson
:
Virðulegi forseti. Ég sé ekki ástæðu til að hafa langt mál um þetta núna þar sem ég hef aðstöðu til að vinna í þeirri nefnd sem mun fjalla um þetta mál, þ.e. sjútvn. Þar á ég sæti sem áheyrnarfulltrúi. Hins vegar vil ég vekja athygli þingmanna á því að samkvæmt þessu verður ekki betur séð en útlendingar geti sett hér upp fiskmarkað og þar af leiðandi keypt óunninn fisk og flutt utan til vinnslu. Og ég get ekki sagt annað en að hér er enn ein bakdyraleiðin komin að landhelgi okkar.
Mér finnst full ástæða til að vekja athygli á slíku sem virðist vera að slæðast hér með með einum eða öðrum hætti í þessa umræðu um EES í krafti samræmingar. Við verðum að gæta að okkur. Við verðum að sjá hvað við erum að gera og taka hvert einasta frv. til gaumgæfilegrar athugunar og tel að það eigi fyrst og fremst að gerast í nefndum eins og t.d. í þessu tilviki, en það er alveg ótvírætt að með því að geta sett upp og haft sjálfur allt forræði yfir því hvernig fiskmarkaði sé háttað er í raun og veru verið að setja býsna mikið vald í hendur erlendra aðila.