Sjávarútvegsráðherra (Þorsteinn Pálsson)
:
Frú forseti. Hv. 5. þm. Vestf. innti eftir því hvað átt væri við með lokaorðum í síðari mgr. 1. gr. frv. þar sem gert er ráð fyrir því að settar verði nánari reglur um hvernig ríkisborgarar hins Evrópska efnahagssvæðis skuli verða undanþegnir skilyrðum um ríkisfang og búsetu. Hér er einungis um að ræða framkvæmdareglur en ekki á nokkurn átt vikið að efnisreglum í þessu samhengi. Þær koma fram í lagagreininni sjálfri.
Hv. þm. taldi að þetta frv. bæri vott um að nauðsynlegt væri að breyta lögunum frá 1991 um fjárfestingu útlendinga í atvinnurekstri á Íslandi. Því fer víðs fjarri. Hér er ekki á nokkurn hátt verið að breyta þeim lögum eða víkja þeim á nokkurn hátt til hliðar. Hér er verið að breyta lögum frá 1989 um uppboðsmarkað fyrir sjávarafla. Eins og nokkrum sinnum áður hefur komið fram í umræðum hér á þinginu undanfarnar vikur þá náðist sá fyrirvari sem við settum að við getum haldið óbreyttum þeim fjárfestingalögum sem sett voru að því er varðar sjávarútveginn og þau standa því óhögguð og óbreytt og samningurinn gefur ekkert tilefni til breytinga á þeim.
Þá kom fram það sjónarmið bæði hjá hv. 9. þm. Reykn. og hv. 3. þm. Vesturl. að með þessari breytingu væri búið að opna fyrir það að útlendingar gætu flutt út óunninn fisk og keypt hér fisk á mörkuðum til vinnslu og síðan ráðstöfunar á erlenda markaði. Rétt er að hafa í huga að þetta frv. mælir einvörðungu fyrir um að ríkisborgarar á EES-svæðinu geta verið eignaraðilar að uppboðsmörkuðum. Frv. breytir í engu gildandi reglum um útflutning á sjávarafurðum. Eignaraðilar að uppboðsmörkuðum eru jafnháðir gildandi reglum um útflutning og íslenskir borgarar og íslenskir lögaðilar. Samningurinn felur ekki í sér að við þurfum að gera breytingar á þeirri skipan sem nú er á útflutningsmálum á sjávarafurðum og þetta frv. mælir ekki fyrir um neinar breytingar þar á. Til að mynda höldum við óbreyttu álaginu sem lagt er á útflutning á ferskum fiski og kemur til skerðingar á kvóta þeirra skipa sem flytja út. Við getum haldið áfram óbreyttri starfsemi aflamiðlunar og þeirri skipan útflutningsmála sem nú er við lýði. Þetta frv. breytir engu þar um.
Hv. 3. þm. Vesturl. spurði að því hvort ég sæi ekki fyrir mér í framtíðinni að sjávarútvegurinn gæti ekki stýrt útflutningsmálum með þeim hætti sem hann hefur gert. Við þeirri spurningu er það eitt svar að hvorki samningur um Evrópskt efnahagssvæði né þetta frv. gefa tilefni til breytinga þar á. Hitt er svo annað mál að á þessu sviði sem öðrum geta orðið breytingar í framtíðinni sem hvorki ég né hann sjá fyrir.