Ríkismat sjávarafurða

21. fundur
Þriðjudaginn 15. september 1992, kl. 16:06:38 (737)


     Sjávarútvegsráðherra (Þorsteinn Pálsson) (andsvar) :
    Frú forseti. Ég þekki ekki þau dæmi sem hv. þm. vék að í sínu máli. Vitaskuld verður að skoða þau og meta á grundvelli slíkrar skoðunar, hvort þau brjóta í bága við gildandi lög. Án slíkrar undangenginnar skoðunar treysti ég mér ekki til að svara spurningu af þessu tagi með óyggjandi hætti.