Hagræðingarsjóður sjávarútvegsins

21. fundur
Þriðjudaginn 15. september 1992, kl. 22:05:51 (775)


     Sjávarútvegsráðherra (Þorsteinn Pálsson) (andsvar) :
    Herra forseti. Það sem ég greindi frá var það að stjórn Fiskveiðasjóðs hefur í dag á fundi sínum tekið um það ákvörðun að bjóða kvótahöfum þessar aflaheimildir til kaups svo sem lögin mæla fyrir um. Sú ákvörðun var formlega tekin í dag.