Hagræðingarsjóður sjávarútvegsins

21. fundur
Þriðjudaginn 15. september 1992, kl. 22:42:53 (784)

     Flm. (Jóhann Ársælsson) (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Það var út af þessum fjölstofnarannsóknum. Það voru einungis á sjötta hundrað milljónir af þessari upphæð sem menn ætluðu að fá út úr Hagræðingarsjóðnum sem átti að nota í þessar fjölstofnarannsóknir ef ég man rétt. Þannig að það hefði nú aldeilis ekki átt að nota það allt í það.
    Ég vil svo bara endurtaka það að ég tel að það eigi að varðveita frelsið í sambandi við atvinnurekstur í sjávarútvegi og ég ætla að vona það satt að segja að menn beri gæfu til þess að koma ekki á svipuðu kerfi og er í útgerðinni.