Hagræðingarsjóður sjávarútvegsins

21. fundur
Þriðjudaginn 15. september 1992, kl. 22:51:04 (790)

     Össur Skarphéðinsson (andsvar) :
    Virðulegur foreti. Mér þótti vænt um að fá tilefni til að láta þá skoðun í ljós að ég tel löngu tímabært að ríkisstjórnin komi fram með stefnu um málefni sjávarútvegsins. Ég tel að það sé hlutverk hæstv. sjútvrh. og ég eins og þingheimur bíð eftir því að sjá þessar tillögur.