Hagræðingarsjóður sjávarútvegsins

21. fundur
Þriðjudaginn 15. september 1992, kl. 23:46:23 (798)

     Forsætisráðherra (Davíð Oddsson) (andsvar) :
    Herra forseti. Hv. þm. veit það vel að ágreiningur hefur verið um það hvort Hagræðingarsjóðurinn væri notaður með þeim hætti sem ríkisstjórnin ákvað. Sá ágreiningur hefur verið staðfestur hér í þinginu. Ríkisstjórnin hefur ekki breytt um stefnu í þeim efnum og hefur svarað því mjög skýrt þannig að Hagræðingarsjóðurinn er í þessu tilviki ekki inni í myndinni af hálfu ríkisstjórnarinnar.