Umræða um lagaákvæði er varða samgöngumál

22. fundur
Miðvikudaginn 16. september 1992, kl. 15:45:29 (833)

     Jóhann Ársælsson :
    Virðulegur forseti. Ég verð að lýsa yfir miklum vonbrigðum mínum með það hvernig þessari umræðu lýkur. Ég hafði gert ráð fyrir því að hæstv. samgrh. tæki hér til máls og svaraði þeim spurningum sem voru lagðar fyrir hann. Það voru margar spurningar sem komu fram í umræðunni. Ég ætla ekki að fara að tína þær upp hér en ég óska eindregið eftir því að hæstv. samgrh. sjái sér fært að svara þeim. Ég tel að það hafi verið það viðamiklar spurningar og beiðnir um að hann útskýrði sinn skilning á málinu að hann geti ekki boðið þingmönnum upp á það að víkja sér undan að svara þeim.