Umræða um lagaákvæði er varða samgöngumál

22. fundur
Miðvikudaginn 16. september 1992, kl. 15:55:55 (842)

     Samgönguráðherra (Halldór Blöndal) :
    Herra forseti. Það er óhjákvæmilegt að fram komi að ég færði ítarleg rök fyrir því hvers vegna ekki væri ástæða til að setja sérstök lög um þau efni sem þetta frv. fjallar um, fram yfir það sem þar er gert ráð fyrir. Hv. þm. á jafnframt að vera kunnugt um að nauðsynlegt er að hafa stoð í lögum til að heimilt sé að setja reglugerð.