Jóhannes Geir Sigurgeirsson (andsvar) :
Virðulegi forseti. Ég er hræddur um að sá sem ber Davíðsnafnið í núv. hæstv. ríkisstjórn hafi tekið samlíkinguna við þann Davíð, sem hæstv. fjmrh. vitnaði til, fullalvarlega og telji sig þess umkominn að kveða upp stærri dóma en er í verkahring hæstv. ríkisstjórnar á Íslandi. Það er kannski hluti af skýringunni hvernig tiltókst í sumar.
En ég vil aðeins ítreka það og benda hæstv. fjmrh. á að ekkert þýðir að tala um það núna að menn þurfi að breyta þingsköpunum til þess að bregðast við þessum aðstæðum. Það hefði engu breytt á sl. sumri. En það breytir heldur ekki því að allar heimildir til þess að semja um styttra þinghald og að hægt væri að standa við það voru til staðar í þingsköpunum eins og þau litu út á sl. sumri og það kemur því ekkert við þó að menn geti talið að það ætti að breyta þingsköpunum frá því sem nú er.