Álit EFTA-dómstólsins um skýringu samnings um EES

23. fundur
Fimmtudaginn 17. september 1992, kl. 20:58:18 (985)

     Ólafur Þ. Þórðarson (um þingsköp) :
    Herra forseti. Hér gætir nokkurs misskilnings. Orðrétt stendur hér, með leyfi hæstv. forseta:
    ,,Hafi það eigi þá fyrirsögn vísar forseti því frá.`` Það stendur ekki að hann leiti álits þingsins heldur er valdið hans. Ég undirstrika það sem ég sagði áðan að það hefði verið eðlilegt, m.a. vegna þeirra efasemda sem koma fram hjá sérfræðingunum fjórum, að forseti léti leita álits á þessu.