Dómsmálaráðherra (Þorsteinn Pálsson)
(andsvar)
:
Frú forseti. Kjarni málsins er sá að hv. 4. þm. Norðurl. e. getur ekki gert greinarmun á fordæmum í þessu efni eftir huglægri afstöðu sinni til einstakra erlendra dóma eða stofnana. Vel má vera að honum sé meira annt um Mannréttindadómstólinn en EFTA-dómstólinn og þyki meira til hans koma. Það kann vel að vera að hann hafi gild rök til þess. Ég ætla ekki að gera athugasemd við það. En sú huglæga afstaða getur ekki ráðið mati á þeim grundvallaratriðum sem eru álitaefni hér.