Atvinnu- og búseturéttur launafólks innan EES

24. fundur
Föstudaginn 18. september 1992, kl. 11:37:37 (1028)

     Forseti (Valgerður Sverrisdóttir) :
    Forseti vill vekja athygli á því að hæstv. ráðherra hefur bara þrjár mínútur til umráða undir liðnum þingsköp þannig að ég held ég verði að biðja hæstv. ráðherra að koma síðar inn í umræðuna og gera grein fyrir því máli sem hér um ræðir.