Atvinnu- og búseturéttur launafólks innan EES

24. fundur
Föstudaginn 18. september 1992, kl. 14:52:54 (1048)

     Margrét Frímannsdóttir :
    Virðulegi forseti. Í beinu framhaldi af ræðu hv. 5. þm. Vestf. langar mig til að beina þeirri spurningu til hæstv. ráðherra hvort við munum fá hér lista yfir þau störf þar sem íslenskukunnáttu verður krafist áður en frv. kemur til lokaumræðu og jafnframt skilgreiningu á því hvað er nægjanleg íslenskukunnátta í hvert starf.