Atvinnu- og búseturéttur launafólks innan EES

24. fundur
Föstudaginn 18. september 1992, kl. 14:53:36 (1049)


     Félagsmálaráðherra (Jóhanna Sigurðardóttir) :
    Virðulegi forseti. Sem svar við spurningu hv. þm. vil ég geta þess, sem reyndar kom fram í minni ræðu, að félmrn. hefur beint því til annarra ráðuneyta að nauðsynlegt sé að það sé samræmi í þeim kröfum sem settar eru fram af hálfu einstakra ráðuneyta um hvar íslenskukunnáttu verður krafist þannig að það sé samræmd framkvæmd um allt land. Þessu bréfi hefur verið komið til ráðuneytanna og ég vænti þess að það verði hafist handa í því efni að samræma þetta atriði.