Eftirlit með framleiðslu á fóðurvörum

26. fundur
Miðvikudaginn 07. október 1992, kl. 14:35:35 (1125)

     Landbúnaðarráðherra (Halldór Blöndal) :
    Hæstv. forseti. Ég vil ítreka það sem ég sagði áðan að ég hef falið Markúsi Möller hagfræðingi að halda áfram úttekt sinni á ylrækt, garðyrkju-, blómarækt og öðru sem lýtur að því og möguleikum á að styrkja stöðu þeirrar atvinnugreinar. Því miður lágu ekki fyrir fullnægjandi gögn um ýmsa rekstrarþætti hennar áður og því tekur þessi vinna lengri tíma en ég hafði búist við. En ég vonast til að einhverjar niðurstöður geti legið fyrir, ég þori ekki að lofa í þessum mánuði en a.m.k. í þeim næsta. Þetta verk er unnið í nánu samstarfi við Félag garðyrkjubænda.