Friðhelgi og forréttindi alþjóðastofnana

26. fundur
Miðvikudaginn 07. október 1992, kl. 15:28:02 (1142)

     Páll Pétursson (andsvar) :
    Frú forseti. Mér er margt óljóst og ég tek með þökkum að góðir menn og sannorðir sem ég treysti segi mér hvað ég á að segja því sá er munurinn á okkur hæstv. viðskrh. að mér finnst ég vita bara sumt en ég hef það á tilfinningunni að honum finnist hann iðulega vita allt.