Íslenskt sendiráð í Japan

28. fundur
Fimmtudaginn 08. október 1992, kl. 13:53:17 (1186)

     Anna Ólafsdóttir Björnsson (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Varðandi ræðu hæstv. utanrrh. vil ég einungis benda á það, svo að það fari ekkert á milli mála í þessari umræðu, að við eigum ekki aðild að Evrópsku efnahagssvæði enn þá. Það verður háð ákvörðun þingsins en það mátti skilja orð hans svo að við værum þar komin inn og að þau lög og þær reglur sem ætlað er að gildi innan þess svæðis gildi á Íslandi nú. Ég vil aðeins árétta þetta.