Dómar í kynferðisafbrotamálum

30. fundur
Þriðjudaginn 13. október 1992, kl. 13:51:39 (1265)

     Dómsmálaráðherra (Þorsteinn Pálsson) :
    Frú forseti. Hvorki ég né Alþingi kveða upp dóma. Við setjum lagareglur. Það varð samkomulag á Alþingi síðasta vor um þær breytingar sem þá voru gerðar á hegningarlögunum í þessu skyni. En hvorki ég né Alþingi kveða upp dóma í þessu efni.