Hækkun meðlags til einstæðra foreldra

30. fundur
Þriðjudaginn 13. október 1992, kl. 14:02:16 (1278)

     Guðný Guðbjörnsdóttir :
    Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. heilbrrh. svarið. Hins vegar velti ég því fyrir mér hvort hann geti beitt sér fyrir lagabreytingu þannig að þetta geti orðið. Mér skilst samkvæmt upplýsingum sem liggja fyrir að þetta geti orðið umtalsverður sparnaður fyrir ríkissjóð og ríkissjóði veitir víst ekki af nú á tímum.