Skipan opinberra framkvæmda og opinber innkaup

30. fundur
Þriðjudaginn 13. október 1992, kl. 14:51:37 (1289)

     Gunnar Birgisson (andsvar) :
    Frú forseti. Til að svara hv. þm. Svavari Gestssyni vil ég benda á að ef erlendir verktakar hafa áhuga á því að starfa á Íslandi og telja það vænlegt geta þeir stofnað hér dótturfyrirtæki. Það hafa erlendir verktakar gert, menn geta alltaf farið fram hjá þessu. Ég tel enga hættu á ferðum og að grundvallarbreytingin sé ekki sú sem hv. þm. heldur fram. Ég tel að þetta sé frekar af hinu góða en af hinu slæma.