Skipan opinberra framkvæmda og opinber innkaup

30. fundur
Þriðjudaginn 13. október 1992, kl. 15:22:11 (1298)


     Fjármálaráðherra (Friðrik Sophusson) (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Ég vil einungis þakka hv. þm. fyrir hans ábendingar sem ég tel gagnlegar. Ég vona að það hafi komið skýrt til skila hvað er átt við í lagagreininni og ég vænti þess að hinn mikli áhugi sem þingmaðurinn sýnir á því að þýðingar séu sem allra bestar á þessum sáttmála og lagafrumvörpum verði til þess að greiða fyrir þessu máli og öðrum málum tengdum Evrópska efnahagssvæðinu sem eru til meðferðar á hinu háa Alþingi.