Guðmundur Bjarnason
(andsvar)
:
Virðulegi forseti. Ég vil aðeins ítreka að það hlaut að vera eðlilegur farvegur fyrir þessa fjármuni sem áttu að fara til reksturs á stofnunum í gegnum sjúkratryggingadeild. Það er sjúkratryggingadeildin sem greiðir reksturskostnaðinn í gegnum daggjaldakerfið. En ég árétta það aftur að vera kann að þar hafi verið of í lagt, að það hafi verið meira en búið var að ákveða að hefja rekstur á nýjum stofnunum samkvæmt þessum upplýsingum. Ég ætla ekki að fara í ágreining við hæstv. ráðherra um þær tölur sem Ríkisendurskoðun hefur sent frá sér. Mér dettur það ekki í hug. Ég hef ekkert fyrir framan mig til að taka upp neina deilu um þær tölulegu upplýsingar.