Verðlagning á raforku

39. fundur
Mánudaginn 26. október 1992, kl. 14:37:43 (1506)

     Jóhann Ársælsson (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Ein spurning til hæstv. iðnrh. Er það rangt sem kemur fram í bréfi frá Rafmagnsveitum ríkisins til iðnrh. frá því 18. sept. sl. að arður af eigin fé þess fyrirtækis hefði orðið 122 millj. kr. á árinu 1991? Er það ekki það sem verið er að tala um að taka út úr því fyrirtæki á næsta ári ef hag fyrirtækisins verður með svipuðum hætti?