Steingrímur J. Sigfússon
:
Hæstv. forseti. Ég þakka hæstv. sjútvrh. þessi svör og ég fagna því að hreyfing er komin á málið í ráðuneytinu. Ég tel ekkert því til fyrirstöðu í raun og veru að tryggja að einhver hluti síldarkvótans verði nýttur til þess að fullnægja hráefnisþörfum vinnslunnar þannig að allir handbærir sölumöguleikar verði nýttir. Auðvitað skiptir líka miklu máli að fá á hreint eftir því sem hægt er hvort einhverjir raunhæfir möguleikar eru á sölu saltsíldar til Austur-Evrópu í formi vöruskipta eða á einhverjum öðrum viðráðanlegum kjörum vegna þess að þá verður að gera ráð fyrir þeirri síld við hráefnisöflun til vinnslunnar. Síldin sem nú veiðist er óvenjustór og falleg og verðmæt og kvótinn upp á 150 þús. tonn af þessum fína matfiski og það er auðvitað grátlegt í öllu tilliti ef ekki er hægt að nýta þennan stofn eins og kostur er til hámarksverðmætasköpunar og til manneldis.