Margrét Frímannsdóttir :
Virðulegi forseti. Þau vekja óneitanlega furðu framlögin sem áætluð eru á árinu 1993 til meðferðarstofnana vegna áfengis- og vímuefnaneyslu, ekki síst í ljósi þess að á síðustu missirum hefur það æ betur komið í ljós að neysla vímuefna er að aukast og afbrot tengjast að miklu leyti hvers konar fíkniefnaneyslu. Það hefur jafnvel verið fullyrt að um helmingur allra glæpa sé framinn undir áhrifum vímuefna. Þar er átt við ýmis auðgunarbrot en ekki síður ofbeldisverk. Í nær hverri viku fáum við fréttir af ofbeldisverkum og þeim mjög alvarlegum, ofbeldisverkum sem hægt er að rekja beint til neyslu vímuefna. Þar nægir að minna á nýlegt barnsrán sem framið var í Reykjavík.
Í úttekt, sem gerð var af DV fyrr á þessu ári og unnin var í samráði við ríkissaksóknara, Rannsóknarlögreglu ríkisins og yfirlækni slysadeildar, kom í ljós að aðferðir við ofbeldi eru orðnar mun grófari en áður og þessir aðilar eru fullvissir um að mörg þeirra ofbeldisverka sem framin eru tengist vímuefnaneyslu beint. Þetta eru allt staðreyndir sem liggja fyrir og allir þekkja. Það þekkja líka allir þá staðreynd að vandinn í ríkisfjármálum er mikill og það verður að skera niður. En finnst hæstv. ráðherra rétt að beita niðurskurðinum af svo mikilli hörku á alla starfsemi er lýtur að áfengis- og vímuefnameðferð? Telur hann það rétt á sama tíma og áfengis- og vímuefnaneysla eykst?
Þegar fjárlög fyrir árið 1992 voru samþykkt voru framlög til SÁÁ skorin niður um 15% og enn á að skera þar niður langt umfram það sem gert er hjá ýmsum stofnunum ríkisins sem fá framlög. Og það er rétt að það komi fram við þessa umræðu að það eru um 10.000 einstaklingar sem hafa farið í meðferð hjá SÁÁ frá því að stofnunin hóf störf.
Hjá Ríkisspítölunum eru framlög til þessara mála lækkuð enn meira. Þar á að fækka rúmum um 46 ef þessi áform ná fram að ganga. Með þessum aðgerðum, hæstv. ráðherra, er verið að brjóta niður það starf sem SÁÁ og starfsmenn Ríkisspítala hafa byggt upp á síðustu árum og það er því eðlilegt að hér sé spurt um stefnu ríkisstjórnarinnar í þessum málum og líka hvort hæstv. ráðherra telji að þetta séu þau framlög sem þurfi til að sinna þessari mikilvægu starfsemi.