Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir nál. og brtt. efh.- og viðskn. um frv. til laga um gjaldeyrismál. Ég vil þakka meðnefndarmönnum mínum fyrir ágætt samstarf um þetta mál. Nefndin hefur orðið sammála um fjórar brtt. við frv. Þær eru á þskj. 184 og síðan nál. sem öll nefndin skrifar undir.
Allmargir aðilar hafa verið kallaðir til og beðnir um umsögn um þetta mál. Þær voru almennt séð mjög jákvæðar. Mönnum þykir nauðsynlegt að stíga þetta skref í frjálsræðisátt í gjaldeyrisviðskiptum. Þetta skref er líka nauðsynlegt til þess að markaðsskráning á gengi krónunnar geti gengið fyrir sig með eðlilegum hætti. Í frv. er lagt til að lögfest verði sú meginregla að gjaldeyrisviðskipti vegna inn- og útflutnings vöru, þjónustu og fjármagnshreyfinga verði óheft. Þar er líka kveðið á um frávik frá þeirri meginreglu í takt við það sem mun gilda á hinu Evrópska efnahagssvæði.
Nefndin leggur áherslu á að það verði vandað til framkvæmdar nýrra reglna og hugsanlegra breytinga.
Í þessu sambandi er mikil áhersla lögð á að millibankamarkaður með gjaldeyri verði þróaður áður en allar hömlur í fjármagnshreyfingum til skemmri tíma verða lagðar af. Þá þarf peningamarkaður að hafa þróast með þeim hætti að Seðlabankinn geti með viðskiptum þar og með beitingu peningalegra stjórntækja haft áhrif á skammtímanafnvexti og þar með fjármagnsstreymi til og frá landi.
Loks verður að tryggja að bankinn hafi nægilega sterk stjórntæki til þess að geta stýrt peninga- og gengismálum við nýjar aðstæður óheftra fjármagnshreyfinga.
Brtt. ganga í þá átt að í 1. málsl. 3. gr. komi í stað stöðvunar takmörkun eða stöðvun á tilteknum flokkum fjármagnshreyfinga þannig að hægt sé að að takmarka ýmsa flokka fjármagnshreyfinga án þess að þurfa beinlínis að stöðva þær.
Önnur brtt. er orðalagsbreyting þar sem skýrt sé kveðið á að ákvæði taki til gjaldeyrisviðskipta vegna tiltekinna flokka fjármagnshreyfinga.
Í þriðja lagi má segja að 3. og 4. brtt. sé um sama málið. Í frv. var gert ráð fyrir því að leyfi tiltekinna aðila til gjaldeyrisviðskipta félli niður og þau ætti að gefa út upp á nýtt. Við í nefndinni teljum eðlilegt að leyfin sem slík falla ekki niður heldur séu þau endurnýjuð með eðlilegum hætti án þess að þeir aðilar sem nú hafa rétt til gjaldeyrisviðskipta samkvæmt lögum, svo sem sparisjóðir, missi þau við samþykkt frv.