Flm. (Kristín Ástgeirsdóttir) :
Virðulegi forseti. Ég ætla að láta mig hafa það að mæla fyrir þessari till. þrátt fyrir bæði ráðherraleysi og þingmannaleysi hér.
Ég mæli fyrir þáltill. á þskj. 182, en flm. ásamt mér eru Kristín Einarsdóttir, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, Jóna Valgerður Kristjánsdóttir og Anna Ólafsdóttir Björnsson. Tillgr. er svohljóðandi, með leyfi forseta:
,,Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að skipa nefnd sagnfræðinga, fornleifafræðinga, þjóðháttafræðinga, íslenskufræðinga og fólks úr ferðaþjónustu til að setja fram hugmyndir og tillögur um það hvernig nýta megi sögu þjóðarinnar, sögustaði, þjóðhætti, verkmenningu og bókmenntir til að efla og bæta ferðaþjónustu hér innan lands.``
Í grg. með tillögunni segir, með leyfi forseta:
,,Ferðamannaþjónusta er vaxandi atvinnugrein á Íslandi og er oft á hana bent sem einn helsta vaxtarbrodd atvinnulífsins. Það sem af er þessu ári hafa um 126 þúsund erlendir ferðamenn komið til landsins. Landsmenn sjálfir ferðast auðvitað mikið um landið, jafnt í byggðum sem óbyggðum.
Undanfarna áratugi hefur náttúra Íslands ráðið ríkjum við kynningu á landinu og áherslan þá einkum verið á óbyggðir landsins. Að dómi flutningsmanna hefur landið og þjóðin margt fleira upp á að bjóða, bæði tengt fortíð og nútíð, en þeir möguleikar eru enn að mestu ónýttir. Þannig mætti skapa nýja ferðamannastaði og jafna strauminn um landið.
Íslendingar eiga merka sögu. Hér varð til sérstakt samfélag í kjölfar víkingaferða á miðöldum sem fæddi af sér heimsbókmenntir sem ekki eiga sinn líka í veröldinni. Þessar bókmenntir, svo og tungumálið, má nýta í ferðaþjónustu í mun ríkara mæli en gert er, með sumarnámskeiðum, ferðum á söguslóðir o.s.frv. Hér á landi er t.d. ekki til neitt víkingasafn eða safn sem gerir sér verulegan mat úr sögu þjóðarinnar. Flest söfn landsins, þótt merkileg séu, eru afar gamaldags og þarfnast endurskipulagningar og aukinnar kynningarstarfsemi svo að þau geti gefið þá mynd af sögu og verkmenningu þjóðarinnar sem þeim er ætlað.
Margir helstu sögustaðir þjóðarinnar hafa ekki upp á neitt að bjóða sem tengist sögunni, ekki svo mikið sem reglubundna leiðsögn um staðinn. Má þar t.d. nefna Skálholt og Hóla í Hjaltadal, en þar væri tilvalið að hefja uppgröft bæjarhúsanna og væri það margra ára verk sem eflaust drægi til sín fjölda ferðamanna. Á gömlu biskupsstólunum mætti hafa stöðuga kynningu á biskupasögunum, umræður um trúmál og kirkju o.fl. Staðir, sem koma við sögu í Sturlungu, gefa kost á ferðum og sviðsetningu þeirra miklu atburða, t.d. í leikformi. Í Reykholti ætti að vera stöðug kynning á verkum Snorra Sturlusonar og bókmenntanámskeið í norrænum fornbókmenntum.
Sjávarútvegur að fornu og nýju, fjörurnar og nýting þeirra, mataræði Íslendinga gegnum aldirnar, gömul verkmenning, heimsókn á sveitabæi, kynning á íslenskum húsdýrum og búskap, minjagripagerð, þjóðsagnaheimur okkar o.fl. Hugmyndirnar eru óþrjótandi og möguleikarnir margir en þeim þarf að safna saman, setja í forgangsröð og gera áætlun um uppbyggingu ferðaþjónustu sem tekur mið af sögu landsins.
Með þessari tillögu er lagt til að þeir sem gerst þekkja sögu þjóðarinnar, sögustaði, verkmenningu, fornleifar og þjóðhætti verði kallaðir til að setja fram hugmyndir í samráði við fólk úr ferðaþjónustunni. Hugmyndirnar mætti síðan nýta til að auka og bæta þjónustu við ferðamenn.
Hér er ekki fyrst og fremst um það að ræða að nýta söguna og okkar fornu bókmenntir til að kynna fyrir útlendingum, heldur ekki síður að saga okkar, sögustaðir og menning verði Íslendingum aðgengileg á margvíslegan hátt.``
Virðulegi forseti. Þessi tillaga var lögð fram á síðasta þingi en komst ekki einu sinni til umræðu vegna þess hve illa gekk að koma málum þingmanna að. Mikið vatn hefur runnið til sjávar síðan þá, mest þó í eina átt, til vaxandi erfiðleika í okkar þjóðarbúskap. Það veitir því ekki af að leita allra leiða til atvinnusköpunar, ekki síst til kosta sem gagnast konum en eins og þingheimur veit er atvinnuleysi meðal kvenna meira en meðal karla. Og atvinnu- og framtíðarhorfur kvenna, einkum á landsbyggðinni, eru langt frá því að vera bjartar. Það er því brýnt bæði að grípa til aðgerða sem skapa vinnu strax, jafnvel atvinnubótavinnu, en ekki síður að horfa til framtíðar og undirbúa vel tillögur sem skapa varanlega vinnu og treysta byggð þar sem möguleikar gefast á ferðaþjónustu af ýmsu tagi.
Þeir sem ferðast um lönd og álfur taka eftir því hve ferðaþjónusta er víða háþróuð atvinnugrein. Má þar t.d. nefna Ítalíu, Þýskaland, Ungverjaland og Austurríki. Þessi lönd hafa upp á margt að bjóða og hefur tekist að flétta saman skoðun á náttúru, kynningu á menningu og þjóðháttum ásamt því að bjóða hundruðum þúsunda ferðamanna upp á hvíld og afþreyingu.
Að mínum dómi eigum við Íslendingar mikið verk óunnið í ferðaþjónustu en búum yfir miklum möguleikum. Þeir felast í því að við áttum okkur á hvað við eigum, ekki einungis í náttúru landsins heldur einnig hvað hægt er að byggja upp í kringum þá náttúru, svo sem heilsulindir, heilsurækt og útivist. Síðast en ekki síst felast miklir möguleikar, oft tengdir náttúrunni og umhverfinu, í sögu okkar og menningu eins og ég hef hér rakið.
Íslendingum er eiginlegt að drífa í hlutunum, oft fremur af kappi en forsjá. En hér er um það að ræða að setjast niður, safna saman hugmyndum og setja upp forgangsröð verkefna sem síðan yrði unnið eftir svo sem fjármagn og kraftar leyfa.
Sú tillaga sem ég mæli hér fyrir snertir allt landið og gæti orðið til þess að skapa mörg störf í framtíðinni. Fátt er okkur brýnna nú en að vinna að atvinnusköpun í landinu svo sem ég hef hér áður nefnt. Ekki síst þarf að tryggja því unga fólki sem koma mun út á vinnumarkaðinn á næstu árum vinnu, svo og þeim sem nú ganga um atvinnulausir. Ferðaþjónusta er möguleiki sem þarf að gefa mun meiri gaum en hingað til og þar er afar brýnt að fara skipulega og varlega því við erum þar einkum að fást við viðkvæma náttúru lands okkar.
Það er og í og með tilgangur þessarar tillögu að draga ferðamenn niður í byggð í ríkara mæli en nú er gert, en til þess að það megi verða þarf að bjóða upp á fjölbreytta þjónustu sem felur í sér skemmtun, fræðslu, upplifun og kynningu á því merkasta sem íslenskt samfélag hefur upp á að bjóða og tengist fortíð, nútíð og framtíð.
Virðulegi forseti. Að lokinni þessari umræðu legg ég til að till. verði vísað til hv. menntmn. þar sem ég tel að hér sé ekki síst um menningarmál að ræða.