Virðulegi forseti. Ég vil þakka hæstv. heilbrrh. fyrir hans svör við fyrirspurninni. Ég held að það fari ekki á milli mála að í því svari kemur glöggt fram að allar skyldur og öll réttindi þeirra sveitarfélaga, sem eiga aðild að fulltrúaráði Brunabótafélagsins, eru í raun með sama hætti og hjá hlutafélögum og
þess vegna er eðlilegt að líta svo á að sveitarfélögin, sem hafa tryggt hjá Brunabótafélaginu, séu í raun hinir réttu og sönnu eigendur félagsins í umboði þeirra tryggingataka sem hafa tryggt hjá félaginu í þeim sveitarfélögum.
Það kom fram á aðalfundi fulltrúaráðs Brunabótafélagsins sem haldinn var í ágúst á síðasta ári að það er vilji fyrir því í fulltrúaráðinu að þessi eignaraðild verði skýrð og gerð greinileg og það er mitt mat að flestir sveitarstjórnarmenn leggi á það ríka áherslu að eignarhald Brunabótafélagsins verði skýrt og það verði ekki neinn vafi um það hvernig því verði háttað í framtíðinni.
Ég legg á það mjög mikla áherslu að hæstv. heilbr.- og trmrh. undirbúi lagabreytingar. Það verður að meta það hvort nauðsynlegt sé að leggja félagið niður en ég tel afar mikilvægt að lögum verði breytt og Brunabótafélagið verði gert að hlutafélagi með eignaraðild þeirra sveitarfélaga sem hafa tryggt hjá félaginu. Brunabótafélagið er í samrekstri með Samvinnutryggingum sem eru helmingseignaraðilar að Vátryggingafélagi Íslands og það er óeðlilegt að það sé í lausu lofti hvernig þessari eignaraðild sé háttað.