Eignarhald á Brunabótafélagi Íslands

47. fundur
Fimmtudaginn 05. nóvember 1992, kl. 10:57:28 (1890)

     Heilbrigðisráðherra (Sighvatur Björgvinsson) (um þingsköp) :
    Virðulegi forseti. Ég vildi aðeins láta það koma fram að ég er alfarið sammála úrskurði forseta. Það er ekki hægt að taka mál til efnislegrar umræðu undir umræðu um þingsköp. Ég hefði óskað eftir því að hæstv. forsrh. hefði stöðvað málflutning hv. þm.