Eignarhald á Brunabótafélagi Íslands

47. fundur
Fimmtudaginn 05. nóvember 1992, kl. 10:57:49 (1891)

     Ólafur Þ. Þórðarson (um þingsköp) :
    Herra forseti. Vegna fjarveru hæstv. forsrh. hefur hann ekki séð sér fært að stöðva þessa umræðu en ég vil beina þeirri spurningu til hæstv. forseta hvort hann telji yfir höfuð að fyrirspurninni hafi verið svarað. Þetta er fyrirspurn sem er það einföld að það hlýtur að vera ljóst hvort hæstv. forseti hefur tekið eftir því að henni hafi verið svarað og ég vil þá gjarnan fá að vita á hvern veg.