Varamaður tekur þingsæti

48. fundur
Fimmtudaginn 05. nóvember 1992, kl. 13:04:02 (1913)

     Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
    Borist hefur eftirfarandi bréf, dags. 5. nóv. 1992:
    ,,Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og get því ekki sótt þingfundi næstu tvær vikur, leyfi ég mér með vísun til 2. mgr. 53. gr. laga um þingsköp Alþingis að óska þess, þar sem 1. varaþingmaður Framsfl. í Austurlandskjördæmi getur ekki vegna sérstakra anna tekið sæti á Alþingi, taki 2. varaþingmaður Framsfl. í Austurlandskjördæmi, Karen Erla Erlingsdóttir ferðamálafulltrúi, Egilsstöðum, sæti á Alþingi í fjarveru minni.
    Þetta er yður hér með tilkynnt, virðulegi forseti.
Halldór Ásgrímsson, 1. þm. Austurl.
``

    Þá hefur borist svofellt bréf, dags. á Seyðisfirði 4. nóv. 1992:
    ,,Virðulegi forseti. Vegna sérstakra anna sé ég mér ekki fært að taka sæti á Alþingi á næstunni sem 1. varaþingmaður Framsfl. í Austurl.
Virðingarfyllst,

Jónas Hallgrímsson.
``

    Kjörbréf Karenar Erlu Erlingsdóttur hefur verið rannsakað og samþykkt. Hún hefur hins vegar ekki áður tekið sæti á Alþingi og ber því skv. 2. gr. þingskapa að vinna drengskaparheit að stjórnarskránni.