Utanríkisráðherra (Jón Baldvin Hannibalsson)
(um þingsköp)
:
Virðulegi forseti. Undir dagskrárliðnum þingsköp hefur hv. þm., 3. flm. till. sem hér er flutt, viðurkennt
að tillagan er ekki tillaga um þjóðaratkvæðagreiðslu og kemur því ekki til skila. Þetta er eingöngu skoðanakönnun og er ekki skuldbindandi. Það stendur ekkert upp á mig að svara þeirri spurningu hvort ég vilji að þjóðin hafi seinasta orðið um málið. Ég hef þegar svarað því. Ef hv. þm. á við það með spurningu sinni hvort ég sé tilbúinn til einhvers krukks með honum í skúmaskotum um að breyta stjórnarskrá Íslands áður en við lúkum umræðunni eða á næstu dögum þá er svarið við því nei. Það eru ekki vinnubrögð við hæfi, hv. þm. Ef menn vilja breyta því og þar með breyta stjórnarskrá Íslands þannig að taka upp þjóðaratkvæðagreiðslu sem væri bindandi gera menn það ekki með þeim hætti. Það gera menn með því að flytja um það sérstaka tillögu, þessi dugar ekki til þess, og þeirri tillögu yrði síðan vísað til stjórnarskrárnefndar sem mundi gefa henni vandaða umfjöllun og þar með færi það væntanlega til sérstakrar nefndar samkvæmt þingsköpum Alþingis. Spurning hv. þm. var því ekkert sérstaklega beinskeitt.