Þjóðaratkvæðagreiðsla um aðild Íslands að Evrópska efnahagssvæðinu

48. fundur
Fimmtudaginn 05. nóvember 1992, kl. 16:18:13 (1940)

     Frsm. 1. minni hluta allshn. (Sólveig Pétursdóttir) (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Ég ítreka það sem ég sagði í báðum ræðum mínum hér áðan að hvorki ég né aðrir hafa efast um að Alþingi hefur fullan rétt til þess að taka ákvörðun um að fara í þjóðaratkvæðagreiðslu. Svo það sé engin spurning um túlkun á orðum mínum vildi ég taka þetta fram.