Varamaður tekur þingsæti

49. fundur
Mánudaginn 09. nóvember 1992, kl. 13:32:55 (1963)

     Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
    Borist hefur eftirfarandi bréf, dagsett 5. nóv. 1992:
    ,,Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og get því ekki sótt þingfundi næstu tvær vikur leyfi ég mér með vísun til 2. mgr. 53. gr. laga um þingsköp Alþingis að óska eftir að 1. varaþingmaður Alþfl. í Vestf., Pétur Sigurðsson, forseti Alþýðusambands Vestfjarða, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.
    Þetta er yður hér með tilkynnt, virðulegi forseti.``

    Undir bréfið ritar Sighvatur Björgvinsson, 4. þm. Vestf.
    Pétur Sigurðsson hefur áður tekið sæti á Alþingi og er nú boðinn velkominn til starfa.