Vegáætlun 1992

50. fundur
Þriðjudaginn 10. nóvember 1992, kl. 14:22:03 (2015)

     Einar K. Guðfinnsson (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Ég hygg að jafnþingvanur maður og hv. þm. Guðni Ágústsson viti það mætavel að eftir því sem skuldbindingar okkar aukast hvort sem það er í hafnamálum eða vegamálum kemur það auðvitað niður á framkvæmdaþættinum þegar fram í sækir. Þannig mun það vitaskuld verða þegar menn fara að greiða af þessum lánum sem öðrum lánum.