Jóhannes Geir Sigurgeirsson
(andsvar)
:
Virðulegi forseti. Það var svolítið sérstakt að heyra síðasta ræðumann segja að það væri tittlingaskítur að ætlast til þess að þó að um góð mál sé að ræða sé farið eftir lögum. Það er fátt eins hættulegt og þegar menn sem ekki eru til þess bærir telja sig geta tekið löggjafarvaldið í sínar hendur í þágu góðs málstaðar. Ég vil biðja hv. þm., síðasta ræðumann, að skoða það í ljósi sögunnar.
Ég vil í þessu sambandi benda á að meira að segja þetta plagg sem hér er verið að fjalla um stenst ekki lög. Ef menn lesa kaflann um vegáætlun stendur þar, með leyfi forseta: ,,Í tillögunni skal gera grein fyrir fjáröflun þeirri sem fyrirhuguð er á áætlunartímabilinu og útgjöld sundurliðuð eftir helstu framkvæmdaflokkum samkvæmt lögum þessum.``
Síðan stendur að skiptingin á einstakar framkvæmdir skuli vera í höndum Alþingis. Þetta hefur ekkert með það að gera að menn séu ekki ánægðir með auknar framkvæmdir til vegagerðar, hv. þm. Árni Johnsen. Þetta snýst um siðferði í vinnubrögðum og löggjafarsetningu.