Stefán Guðmundsson
(andsvar)
:
Virðulegi forseti. Vegna ummæla hv. þm. Árna Johnsen áðan vil ég segja að það er einkennileg rökfærsla að halda því fram að þetta sé gott vegna þess að verið sé að setja fjármagn til vegamála vegna erfiðrar stöðu í þjóðfélaginu þegar það er upplýst, hv. þm., að minna fjármagn fer til vegamála en áætlað var. Það fæst ekki staðist. Kjarni málsins er sá, hv. þm., að við höfum ekki verið að gagnrýna það að flýta þessum verkum í sjálfu sér. Við höfum gagnrýnt röðina og vinnbrögðin. Það segir skýrt í kaflanum um vegáætlun og í lögum: ,,Sé fé veitt til þjóðvegagerðar eftir öðrum leiðum en getið er um í till. til þál. um vegáætlun, svo sem í landshlutaáætlunum, með sérstakri fjáröflun eða á annan slíkan hátt, skal fjalla um skiptingu þess innan ramma vegáætlunarinnar og á sama hátt og að framan getur.``
Þetta er kjarni málsins. Við erum að gagnrýna að hæstv. ráðherra hafi ekki séð ástæðu til þess að koma með málið inn í samgn. þingsins og síðan í þingmannahópana.