Vegáætlun 1992

50. fundur
Þriðjudaginn 10. nóvember 1992, kl. 15:17:31 (2044)

     Ólafur Þ. Þórðarson (andsvar) :
    Herra forseti. Hv. 3. þm. Suðurl. flutti ræðu með sínum stíl. Það er aðeins eitt atriði í þeirri ræðu sem ég vil hafa alveg á hreinu. Sá sem hér stendur studdi þá ríkisstjórn sem ákvað að byggja brú yfir Kúðafljót. Sá sem hér stendur sat í fjárveitinganefnd og lagði til þegar farið var yfir það mál að fé yrði sett í þá brúargerð og sá sem hér stendur vill að staðið sé við það. Þess vegna er það algjör misskilningur hjá hv. 3. þm. Suðurl. að hægt sé að stilla mér upp við vegg sem einhverjum óvini Kúðafljótsbrúar. Það er mikill misskilningur.