Fyrirspyrjandi (Jóhann Ársælsson)
:
Virðulegur forseti. Það kom mjög greinilega fram í svörum hæstv. sjútvrh. að það sem við óttuðumst í upphafi er að gerast. Það er verið að draga þessi mál, þau eru að komast í eindaga og nú er hugmyndinni varpað fram, þ.e. lengri reynslutíma. Það var einmitt þetta sem við sögðum í upphafi. Þarna væru á ferðinni hugmyndir um það að teygja á þessum málum eins lengi og mögulegt væri þangað til þau væru komin í eindaga. Menn mundu svo halda áfram með sama kerfi án breytinga.
Ég ætla ekki að mótmæla því að það geti verið góð persónuleg tengsl milli þeirra tveggja höfðingja sem stýra endurskoðunarnefndinni hjá stjórnarflokkunum en sjútvrh. sagði okkur áðan að ágreiningur væri til staðar. Hann ætlar að leysa hann með þessu móti, að framlengja kerfið án þess að á því verði grundvallarbreytingar. Ég tel að það sé gjörsamlega óviðunandi að svona sé staðið að málinu. Hér kemur skýrt fram að sjútvrh., sem er gert það með lögum að leggja fram endurskoðun á þeirri fiskveiðistefnu sem í lögunum felst, er ekki tilbúinn með þau mál, hann er ekki kominn með þau hér til að ræða þau í þinginu. Hann sagði við umræður í vor að nú væru þessi mál komin á það stig að það þyrfti að leggja fram tillögur til þess að standa frammi fyrir. Það hefur ekkert gerst í því. Og nú kemur hann inn á fundinn hér og segir okkur að hann sé að hugsa um að framlengja þessu óbreyttu. Það er niðurstaðan. Grundvallaratriðið sjálft um eignarréttinn á fiskinum í sjónum á að afgreiða með því að prófa þetta svolítið lengur.