Innheimta Pósts og síma

52. fundur
Fimmtudaginn 12. nóvember 1992, kl. 12:38:26 (2185)

     Samgönguráðherra (Halldór Blöndal) :

    Hæstv. forseti. Ég hafði ekki gert mér grein fyrir því að það væri almenn eftirspurn eftir því að fá að slást í hóp þeirra manna sem eiga að meta það fyrir Póst og síma hvað fari yfir hin almennu velsæmismörk og skal koma því áleiðis að hér inni séu tveir áhugasamir þingmenn sem gjarnan vilji taka það að sér og skilgreina betur en gert hefur verið hvar þau mörk liggja.
    Um hitt hef ég það eitt að segja að þessir upplýsingasímar eru dýrari en aðrir símar vegna þess að Póstur og sími annast innheimtu fyrir þá sem láta slíka upplýsingaöflun í té og eftir reglum, sem ég ekki kann, skiptast greiðslur milli slíkra fyrirtækja og Pósts og síma.