Staða loðdýrabænda

52. fundur
Fimmtudaginn 12. nóvember 1992, kl. 13:07:43 (2199)

     Forseti (Valgerður Sverrisdóttir) :
    Forseti vill taka það fram að það er mjög mikilvægt að hv. þm. misnoti ekki þetta ákvæði þingskapalaga um að fá að bera af sér sakir. Biðji þeir um það er mjög mikilvægt að þessi tími sé einungis nýttur til þess að bera af sér sakir en ekki til þess að fara út í efnislega umræðu.
    Nú hefur hv. 3. þm. Vestf. óskað að bera af sér sakir og tekur hann til máls.