Starfsskýrslur Ríkisendurskoðunar 1990 og 1991

53. fundur
Fimmtudaginn 12. nóvember 1992, kl. 14:09:55 (2215)

     Forseti (Valgerður Sverrisdóttir) :
    Forseti vill taka fram að Ríkisendurskoðun heyrir undir Alþingi. Forseta er þó kunnugt um að hæstv. fjmrh. hefur verið gert viðvart um að þess sé óskað að hann sé hér viðstaddur og það er verið að athuga hversu langt er í að hann mæti hér á fundinn.